Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Mikilvægar dagsetningar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
miðvikudagur, 09 maí 2012 10:00

Miðvikudaginn 16.maí er útskrift, vorsýning og söngur barnanna.  Stuðið hefst klukkan 16:00.

graduation hat university

Föstudaginn 25.maí er árleg sveitaferð. Við förum á Bjarteyjarsand, kíkjum á lömbin, hlaupum í grasinu og röltum niður í fjöru. 

 

 
Umferðarskólinn Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
mánudagur, 23 apríl 2012 09:41

Næstkomandi fimmtudag, 26.apríl, munu elstu börn Öldukots/Tjarnarborgar fara í Umferðarskólann.  Á hverju vori starfrækir Umferðarstofa, lögreglan og sveitarfélögin umferðarskóla fyrir fimm og sex ára börn.  Í ár fara börn fædd 2006 í Umferðarskólann og fer hann fram í Laufásborg klukkan 09:30.

 
Gleðilega páska Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
fimmtudagur, 05 apríl 2012 11:33

 Við í Öldukoti óskum öllum gleðilegra páska.

 
Febrúar í Öldukoti Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
mánudagur, 05 mars 2012 22:52

Nú er febrúar að baki, stutti mánuðurinn í ár var þó lengri en oftast. Við fengum allar tegundir af veðri í mánuðinum – snjó, helli-dembu, rok, blíðu - stundum allar á sama degi! Það hafði svo sem lítil áhrif á okkur hér í Öldukoti, útiveran var þá bara síbreytileg, nútíminn færir okkur góðan fatnað og Landakot skýlir okkur fyrir mesta sunnanrokinu!

Við höfum gert marga skemmtilega hluti í mánuðinum. Vasaljósadagurinn með sinni dulúð tókst vel. Það var tvisvar sinnum stöðvavinna. Hún gengur mjög vel, börnin góð í að velja sér það sem þau langar að vinna, einbeita sér að verkefnunum og nýta sér þau tilboð sem í boði eru. Við erum byrjuð að safna verkum f. vorsýninguna – getum lofað að hún verður ekkert slor!! Svo var auðvitað hópastarfið þar sem jafnaldrar vinna saman. Og valið þar sem stjörnur og sjóræningjar velja sér leiksvæði til að leika á.
Í febrúar voru líka aðaldagar ársins, bolludagur, sprengidagur og öskudagur. Þeir voru með hefðbundnu sniði, en líka alveg sérstakir því það eru alltaf ný og ný börn sem taka þátt.
Á bolludaginn borðuðum við bara bollur, fiskibollur í hádeginu, vatnsdeigsbollur í kaffinu, sem sjóræningjar og stjörnur bökuðu, og það mátti borða eins mikið og hver vildi, sumir borðuð 10 +++, en þær voru líka pínulitlar!! Á sprengidag var það saltkjötið – sumir hafa nú alltaf áhyggjur af því að springa í alvörunni en sem betur fer gerðist það ekki. Og á öskudag var það öskudagsskemmtunin. Það hlakka margir til hennar allt árið. Þá var slegið og slegið þar til pappírs-öskupokinn rifnaði og allir fengu popp. Og svo var dansað og dansað og dansað.
Nú er kominn mars með nýjum ævintýrum og foreldraviðtölum.

 

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 25

Röskun á starfi vegna óveðurs eða öskufalls - Disruption of school operations

 Heimasíða Tjarnarborgar

Viðburðir


Matseðill dagsins

Matseðill næstu daga

 
 Leikskólinn Öldukot | Öldugötu 19 | 101 Reykjavík | s: 551-4881 og 693-9875 | Póstur | Viðburðir | Fréttir